Greiningarpróf keyrð í tækinu
Forritið Xperia™ Diagnostics getur prófað tilteknar aðgerðir eða gert alhliða greiningarpróf
til að gá hvort Xperia™-tækið virkar sem skyldi.
Xperia™ Diagnostics getur:
•
Metið hugsanleg vél- eða hugbúnaðarvandamál í Xperia™-tækinu.
•
Greint frammistöðu forrita í tækinu.
•
Skráð fjölda slitinna símtala síðustu 10 daga.
•
Borið kennsl á uppsettan hugbúnað og veitt gagnlegar upplýsingar um tækið.
Forritið Xperia™ Diagnostics er foruppsett í flestum Android™-tækjum frá Sony. Ef
greiningarkosturinn er ekki til staðar í
Stillingar > Um símann eða í valmyndinni VERKFÆRI í
stuðningsforritinu er hægt að sækja létta útgáfu í Play Store™-forritinu.
Sérstakt greiningarpróf keyrt
1
Á Heimaskjár pikkarðu á .
2
Finndu og pikkaðu á
Stillingar > Um símann > Greiningar > Próf.
3
Veldu próf af listanum.
4
Fylgdu leiðbeiningunum og pikkaðu á
Já eða Nei til að staðfesta að eiginleikinn
virki.
Öll greiningarpróf keyrð
1
Á Heimaskjár pikkarðu á .
2
Finndu og pikkaðu á
Stillingar > Um símann > Greiningar > Próf > Keyra allt.
3
Fylgdu leiðbeiningunum og pikkaðu á
Já eða Nei til að staðfesta að eiginleikinn
virki.
119
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.
Upplýsingar um tækið skoðaðar
1
Á Heimaskjár pikkarðu á .
2
Finndu og pikkaðu á
Stillingar > Um símann > Greiningar > Staðreyndir.