Hljóðstyrkur og -stillingar
Hægt er að stilla hljóðstyrk fyrir tilkynningar sem og fyrir tónlist og myndskeið.
Til að stilla hljóðstyrk hringingar með hljóðstyrkstakkanum
•
Ýttu hljóðstyrkstakkanum upp eða niður.
Hljóðstyrkur spilarans stilltur með hljóðstyrkstakkanum
•
Ýttu hljóðstyrkstakkanum upp eða niður þegar verið er að spila tónlist eða horfa á
myndskeið, jafnvel þegar skjárinn er læstur.
Kveikt á titrara
•
Ýttu hljóðstyrkstakkanum upp eða niður þar til
birtist.
Hljóðstyrkur stilltur
1
Á Heimaskjár pikkarðu á .
2
Finndu og pikkaðu á
Stillingar > Hljóð og tilkynningar.
3
Dragðu hljóðstyrkssleðann á æskilegan stað.
Þú getur einnig ýtt hljóðstyrkstakkanum upp eða niður og svo pikkað á
til að stilla hringitón,
spilara eða hljóðstyrk vekjara sérstaklega.
Tækið látið titra þegar hringt er
1
Á Heimaskjár pikkarðu á .
2
Finndu og pikkaðu á
Stillingar > Hljóð og tilkynningar.
3
Dragðu sleðann við hliðina á
Titra líka fyrir símtöl til hægri.
50
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.
Hringitónn valinn
1
Á Heimaskjár pikkarðu á .
2
Finndu og pikkaðu á
Stillingar > Hljóð og tilkynningar > Hringitónn síma.
3
Veldu valkost úr listanum eða pikkaðu á og veldu tónlistarskrá sem er vistuð í
tækinu þínu.
4
Til að staðfesta pikkarðu á
Lokið.
Tilkynningarhljóð valið
1
Á Heimaskjár pikkarðu á .
2
Finndu og pikkaðu á
Stillingar > Hljóð og tilkynningar > Tilkynningarhljóð.
3
Veldu valkost úr listanum eða pikkaðu á og veldu tónlistarskrá sem er vistuð í
tækinu þínu.
4
Til að staðfesta pikkarðu á
Lokið.
Sum forrit hafa sín eigin tilkynningarhljóð sem þú getur valið úr stillingum forritsins.
Til að kveikja á snertitónum
1
Á Heimaskjár pikkarðu á .
2
Finndu og pikkaðu á
Stillingar > Hljóð og tilkynningar > Önnur hljóð.
3
Dragðu sleðana upp að
Tónar á takkaborði og Snertihljóð til hægri.