Sony Xperia E5 - Margir notendareikningar

background image

Margir notendareikningar

Tækið þitt styður marga notendareikninga þannig að mismunandi notendur geta skráð

sig inn á tækið og notað það. Margir notendareikningar eiga vel í aðstæðum þar sem

mismunandi fjölskyldumeðlimir eða hópfélagar deila sama tækinu reglulega. Notendur

geta haft mismunandi heimaskjá, veggfóður og almennar stillingar, sem og sérstaka

minnisgeymslu fyrir skrár á borð við tónlist og myndir.

56

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Ef einhver notar tækið bara tímabundið er hægt að kveikja á gestastillingu og virkja

gestareikning fyrir viðkomandi notanda. Í gestastillingu ræsist tækið í upphafsástandi

kerfisins þar sem aðeins eru forrit sem eru fyrirfram uppsett. Þegar gesturinn er hættur að

nota tækið er hægt að hreinsa lotuna svo næsti gestur geti byrjað frá grunni.
Notandinn sem setur tækið upp í fyrsta sinn verður eigandi tækisins. Eigandinn er

stjórnandi þess eða aðalnotandi. Ekki er hægt að eyða eigandareikninginum en eigandinn

getur eytt öllum öðrum notandareikningum. Þú getur bætt við hámark sjö nýjum

notendum eða . Gestareikningur er fyrirfram uppsettur og ekki er hægt að eyða honum.

Sumir eiginleikar eru aðeins í boði fyrir eigandann. T.d. getur aðeins eigandinn opnað ytra SD-

kortið.

Margir notendareikningar notaðir

Reglulegum notandareikningi bætt við

1

Gakktu úr skugga um að þú sért skráð(ur) inn sem eigandi, það er, notandinn sem

setti tækið upp í fyrsta sinn.

2

Á heimaskjánum pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Notendur > Bæta notanda við.

4

Pikkaðu á

Í lagi. Nýi reikningurinn er búinn til.

5

Pikkaðu á

SETJA UPP NÚNA. Skjárinn læsist og tákn fyrir nýlega viðbættan

notanda birtist efst í hægra horninu.

6

Opnaðu skjáinn með því að strjúka til vinstri eða upp.

7

Fylgdu leiðbeiningunum á skjánum til þess að setja upp reikninginn fyrir

notandann.

Í tilvikum þar sem einstaklingurinn sem er að nota nýjan reikning vill setja upp reikninginn en er

ekki tiltækur eins og er, geturðu pikkað á

EKKI NÚNA í skrefi 5. Þegar notandinn er tilbúinn

getur hann valið

Notendur undir Stillingar og séð reikninginn sem birtist sem Nýr notandi.

Pikkaðu bara á reikninginn og fylgdu leiðbeiningunum til að ljúka uppsetningunni.

Þú getur líka bætt við reglulegum notandareikningi frá stöðustikunni á hvaða skjá sem er.

Dragðu bara stöðustikuna niður og pikkaðu á notandatáknið og svo á

Bæta notanda við.

Gestareikningur virkjaður

1

Gakktu úr skugga um að þú sért skráð(ur) inn sem eigandi, það er notandinn sem

setti tækið upp í fyrsta sinn.

2

Á heimaskjánum pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Notendur > Gestur.

Þú getur líka virkjað gestareikning á stöðustiku allra skjáa. Dragðu bara stöðustikuna niður

með tveimur fingrum, pikkaðu á notandatáknið og svo á

Bæta við gesti.

Skipt á milli margra notendareikninga

1

Dragðu stöðustikuna niður með tveimur fingrum til að sjá notendalistann og

pikkaðu á notendatáknið efst í hægra horni skjásins.

2

Pikkaðu á táknið fyrir notandareikninginn sem þú vilt skipta yfir í. Lásskjárinn fyrir

þann notandareikning birtist.

Þegar þú skiptir yfir í gestareikninginn pikkarðu á

Byrja aftur ef þú vilt hreinsa síðustu lotu eða

pikkar á

Já, halda áfram til að halda áfram í fyrri lotu.

Hver notandi getur stillt sinn eigin lásskjá. Sjá

Skjálás

á bls. 11.

Reglulegum notanda leyft að hringja og senda SMS

1

Gakktu úr skugga um að þú sért skráð(ur) inn sem eigandi.

2

Á heimaskjánum pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Notendur.

4

Pikkaðu á við hliðina á viðkomandi notanda og dragðu svo sleðann við hliðina á

Kveikja á símtölum og SMS til hægri.

57

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Gestanotanda leyft að hringja

1

Gakktu úr skugga um að þú sért skráð(ur) inn sem eigandi.

2

Á heimaskjánum pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Notendur.

4

Pikkaðu á við hliðina á

Gestur og dragðu svo sleðann við hliðina á Kveikja á

símtölum til hægri.

Venjulegum notandareikningi eytt úr tækinu

1

Gakktu úr skugga um að þú sért skráð(ur) inn sem eigandi.

2

Á heimaskjánum pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Notendur.

4

Pikkaðu á við hliðina á nafni notandans sem þú vilt eyða og svo á

Fjarlægja

notanda > Eyða .

Gögn gestalotu hreinsuð

1

Gakktu úr skugga um að þú sért skráð(ur) inn á gestareikninginn.

2

Á heimaskjánum pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Notendur.

4

Finndu og pikkaðu á

Fjarlægja gest.

5

Pikkaðu á

Fjarlægja.

Þú getur einnig hreinsað gestalotuna úr stöðustikunni á hvaða skjámynd sem er, svo lengi sem

þú ert skráð(ur) inn á gestareikning. Dragðu bara stöðustikuna niður með tveimur fingrum,

pikkaðu á notandatáknið og svo á

Fjarlægja gest.

Stillingar fyrir marga notendareikninga

Þrenns konar stillingar eru í boði fyrir tæki með marga notendur:

Stillingar sem allir notendur geta breytt og hafa áhrif á alla notendur. Sem dæmi má nefna

tungumál, Wi-Fi, flugstillingu, NFC og Bluetooth®.

Stillingar sem aðeins hafa áhrif á einstaka notendareikninga. Sem dæmi má nefna

sjálfvirka samstillingu gagna, skjálás, reikninga sem bætt er við og veggfóður.

Stillingar sem aðeins eru sýnilegar eigandanum og hafa áhrif á alla notendur, t.d. VPN-

stillingar.

58

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.