Sony Xperia E5 - Stillingar fyrir internet og MMS

background image

Stillingar fyrir internet og MMS

Til að senda margmiðlunarskilaboð eða komast á netið þegar ekkert Wi-Fi net er til staðar

þarftu að vera með virka farsímatengingu með réttum internet- og MMS-stillingum. Hér

eru nokkrar ábendingar:

Í flestum farsímakerfum og hjá flestum símafyrirtækjum eru internet- og MMS-stillingar

forstilltar í tækinu. Þú getur þá byrjað að nota internetið og senda margmiðlunarskilaboð

undir eins.

Það er hægt að sækja þessar stillingar í gegnum Wi-Fi.

Þú getur hvenær sem er bætt við og breytt eða eytt internet- og MMS-stillingum í tækinu.

Ef þú breytir eða eyðir internet- eða MMS-stillingu óvart skaltu sækja stillingarnar aftur.

Ef þú kemst ekki á netið í gegnum farsímakerfi eða ef margmiðlunarskilaboð virka ekki

þótt internet- og MMS-stillingar hafi verið sóttar skaltu skoða ábendingar um úrræðaleit

fyrir tækið þitt á

www.sonymobile.com/support/

vegna vandamála með þjónustusvæði,

gagnatengingu og MMS.

Ef rafhlöðusparnaður er virkur til að spara orku fer öll gagnaumferð í bið þegar skjárinn

slekkur á sér. Ef þetta veldur vandræðum með tengingu geturðu prófað að undanskilja

einhver forrit eða þjónustur frá stöðvun eða slökkva tímabundið á rafhlöðusparnaði.

Ef þú notar tæki með fleiri en einum notanda getur aðeins eigandinn, þ.e. aðalnotandinn,

sótt internet- og skilaboðastillingar úr valmyndinni Stillingar en stillingarnar sem eru sóttar

ná til allra notenda.

Til að sækja Internet og MMS stillingar

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Meira > Niðurhal stillinga.

3

Pikkaðu á

Samþykkja. Þegar búið er að sækja stillingarnar, birtist á

stöðustikunni og kveikt er sjálfkrafa á gagnatengingu.

Ef ekki er hægt að sækja stillingar í tækið ferðu á sendistyrk á farsímakerfinu þínu. Farðu á

opna staðsetningu þar sem engin hindrun er eða nær glugga og reyndu síðan aftur.

Til að bæta internet- og MMS-stillingum handvirkt inn

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Meira > Farsímakerfi.

3

Pikkaðu á

Heiti aðgangsstaða > .

4

Pikkaðu á

Nafn og sláðu inn heitið sem þú kýst.

5

Pikkaðu á

APN: og sláðu inn heiti aðgangsstaðarins.

6

Sláðu inn allar umbeðnar upplýsingar. Ef þú veist ekki hvaða upplýsinga er krafist

skaltu hafa samband við símafyrirtækið til að fá frekari upplýsingar.

7

Þegar því er lokið pikkarðu á og síðan á

VISTA.

8

Til að velja aðgangsstaðinn sem þú varst að bæta við pikkarðu á valhringinn við

hliðina á heiti hans. Þessi aðgangsstaður verður þá sjálfgefinn fyrir internet- og

MMS-þjónustur.

42

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Sóttar internets- og MMS-stillingar skoðaðar

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Meira > Farsímakerfi.

3

Pikkaðu á

Heiti aðgangsstaða.

4

Pikkaðu á hvaða hluti sem eru til staðar til að skoða fleiri atriði.

Ef nokkrar tengingar eru tiltækar er virka nettengingin gefin til kynna með merktum hnappi .