Heimavalmynd albúms
Úr heimavalmynd albúms geturðu flett að öllum myndaalbúmunum þínum, þ.m.t. þeim
sem innihalda myndir og myndskeið sem tekin voru með myndavél tækisins og
sérstökum áhrifsbrellum, sem og efni sem þú hefur deilt á netinu í gegnum þjónustur á
borð við PlayMemories Online, Picasa™ og Facebook. Þegar þú ert skráð(ur) inn á slíka
þjónustu, getur þú skipulagt efni og skoðað myndir á netinu. Í forritinu Albúm getur þú
líka bætt landmerkjum við myndir, gert einfaldar breytingar og notað þráðlausa
Bluetooth® tækni og tölvupóst til að deila efni.
101
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.
1
Skoðaðu myndir og myndskeið með vefþjónustunni PlayMemories Online
2
Farðu aftur á heimaskjá Albúmsforritsins til að skoða allt efni
3
Skoðaðu uppáhaldsmyndirnar og -myndskeiðin þín
4
Skoðaðu öll myndskeið sem vistuð eru í tækinu
5
Skoðaðu myndirnar þínar á korti í hnattstillingu
6
Skoðaðu myndir og myndskeið sem þú hefur falið
7
Skoðaðu allar myndir og myndskeið úr myndavélinni í tækinu með tæknibrellum
8
Skoðaðu allar myndir og myndskeið í ólíkum möppum í tækinu þínu
9
Skoðaðu myndir og myndskeið í tækjum á sama neti
10 Opnaðu stillingarvalmyndina fyrir albúmsforritið
11 Flettu upp eða niður til að skoða efni
12 Opnaðu vefhjálp
PlayMemories Online vefþjónustan er ekki í boði í öllum löndum eða svæðum.
Myndir frá netþjónustum skoðaðar í Albúmi
1
Á Heimaskjár pikkarðu á .
2
Finndu og pikkaðu á
Albúm og pikkaðu svo á .
3
Pikkaðu á viðeigandi netþjónustu og fylgdu síðan leiðbeiningum á skjánum til að
hefjast handa. Öll tiltæk netalbúm sem þú hefur hlaðið upp í þjónustuna eru birt.
4
Pikkaðu á eitthvert albúm til að skoða innihaldið, pikkaðu síðan á mynd í albúminu.
5
Flettu til vinstri til að skoða næstu mynd eða myndskeið. Flettu til hægri til að
skoða myndina eða myndskeiðið á undan.